Dr. Edwin Yager hóf að þróa Yager-meðferð (Subliminal Therapy) 1979 og kynnti
hana í bók sinni sem kom út 2012, "Subliminal Therapy - Using the Mind to Heal".
Einn af stærstu kostum Yager-meðferðar er að meðferðaraðilinn þarf oft lítið að
leggja af mörkum annað en leiðbeiningar til "Centrum", og
meðferðin er öll unnin í huga meðferðarþegans.
Þannig má komast hjá því að skoðanir meðferðaraðilans hafi áhrif á vinnuna.
Dr. Yager kenndi meðferð sína þrisvar á vegum
Dáleiðsluskóla Íslands í Reykjavík á árunum 2013 og 2014.