Klínísk dáleiðsla og Hugræn endurforritun
Dáleiðsla kallar fram vitundarástand sem hægt er að nýta til sjálfseflingar
Álfheiður starfar sem klínískur dáleiðari á eigin stofu og hefur mikla reynslu af dáleiðslumeðferð. Álfheiður hefur verið kennari á grunnnámskeiði Dáleiðsluskóla Íslands frá árinu 2019. Hún er jafnframt ráðgjafi og eigandi hjá Vinna og vellíðan. Hún er með MS í stjórnun og stefnumótun, BA í sálfræði og er viðurkenndur sérfræðingur á sviði vinnuverndar. Álfheiður hefur fjölbreytta reynslu á sviði mannauðsstjórnunar, verkefnastjórnunar og kennslu.
Klínísk dáleiðsla og Hugræn endurforritun
Álfheiður Eva Óladóttir
Klínískur dáleiðandi
Dáleiðsla í meðferðarskyni hefur fylgt manninum lengi og getur gagnast við margvíslegum vandamálum.
Hægt er að vinna með mál af sálrænum og sálfvefrænum toga í dáleiðslu til dæmis við að breyta vana, vinna með vanlíðan og áföll, vinna með fælni, verkjastjórnun, þyngdarstjórnun, bæta frammistöðu og auka sjálfstraust og almenna sjálfseflingu
Í upphafi fer fram viðtal og kynning og meðferð hefst í framhaldinu. Dáleiðslumeðferð er einstaklingsmiðuð meðferð þar sem meðferðardáleiðari aðstoðar dáleiðsluþega við að ná fram óskuðum breytingum með þróuðum dáleiðsluaðferðum. Dáleiðslumeðferðin gengur út á að ná fram breytingum í undirvitund dáleiðsluþegans með því að finna meðvitaðar og stundum ómeðvitaðar orsakir vandans og breyta mótun eða skilyrðingum sem viðkomandi hefur orðið fyrir og valda erfiðleikum í daglegu lífi.
Staðsetning stofu er í Ármúla 23, 2. hæð, 108 Reykjavík. Einnig er boðið upp á meðferð á netinu.
Nánari upplýsingar og tímabókanir í síma 6634864 eða á daleidslumedferd@gmail.com
Í hvert sinn sem ég kem út frá dáleiðaranum líður mér eins og dálitlu af byrðinni hafi verið létt af mér. Álfheiður/Dáleiðarinn er eina manneskjan sem hefur getað hjálpað mér að losna undan sárum minningum, auk þess sem mér hefur líka tekist að hætta áratuga löngum vana af því að naga á mér neglurnar.
Mér leið vel í tímanum með Álfheiði og treysti henni strax frá byrjun svo upplifun mín var mjög jákvæð. Mér fannst við ná að dekka mikið og vel en á annan hátt heldur en hefur verið gert eins og t.d. hjá sálfræðingi.
Ég hef miklu meiri trú á minni eigin getu, upplifi mig ekki sem heimska og að ég þurfi að reyna að fela það fyrir öðrum. Þessi tilfinning er nánast horfin og auðveldar mér talsvert að stunda nám. Mikil og jákvæð breyting.
Ég hafði verið slæm af höfuðverk um tíma og langaði að athuga hvort dáleiðsla gæti hjálpað mér. Ég hafði mjög hóflegar væntingar þegar ég fór í minn fyrsta dáleiðslutíma en höfuðverkjaköstunum fækkaði mikið í kjölfar meðferðarinnar. Álfheiður hefur góða nærveru, er afar fagleg og ég fann til öryggis á meðan á dáleiðslunni stóð sem var mér mjög mikilvægt.
Viðtal við Álfheiði Evu
í Visir.is 25. maí, 2022
Spilafíkn vék eftir einn dáleiðslutíma
Viðtal við Álfheiði Evu
Fréttablaðinu 14. janúar, 2021
Gríðarlega öflug og
hraðvirk verkfæri